Korter í aðgerð ;)

Þá erum við skötuhjú mætt galvösk til höfuðborgarinnar eftir dásamlega páska á austurlandinu. Börnin urðu eftir hjá ömmu, afa og Írisi og verða í nokkra daga. Erum með litla íbúð leigða hérna í bænum, mjög þægilegt.

Fórum í morgun á landspítalann og þar fór ég í ýmis tékk og skoðanir eins og í blóðprufu, lungnamyndatöku og þess háttar. Svo hittum við Hróðmar lækninn minn og hann fór vel yfir það sem gert verður og hvernig þetta fer fram allt saman. Hann telur þetta ekki taka meira en tvær klukkustundir.

 Að þessari aðgerð koma allt að tíu manns sem vinna saman að því að loka þessu opi milli gátta. Ég á að mæta kl. 7 í fyrramálið en veit ekki nákvæma tímasetningu á þræðingunni. En eftir viðgerðina á ég að liggja fyrir og má ekki hreyfa mig í 5 klst. eftir aðgerð. Eftir það má ég aðeins fara á stjá og um kvöldið ætti ég að vera farin að rölta um. Leggurinn verður tekinn úr náranum seinna um daginn ef allt er með felldu.

Svo næsta dag, þ.e. á föstudeginum verð ég útskrifuð og verðum við hér skötuhjúin í íbúðinni til sunnudags. Þá er planið að fara heim í sveitina BETRI EN NÝ

Látum vita á morgun hvernig VIÐGERÐIN gekk !

 Knús á ykkur öllsömul og takk fyrir að fylgjast með :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikta S Steingrímsdóttir

Gangi þér vel á morgun. Það verður tilhlökkun þegar þú kemur heim aftur. Betri en ný eins og þú segir. Kveðja.

Benedikta S Steingrímsdóttir, 15.4.2009 kl. 15:27

2 identicon

Elsku Hafdís mín gangi þér vel á morgun ;D Verð með hugann hjá þér /ykkur allan daginn á morgun ;*

Njótið rómantíkarinnar í litlu íbúðinni barnlaus í borginni ;D 

Hlakka til að fá þig aftur austur stálslegna ;D 

Kv. Lindartúnsgengið ;D

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 15:30

3 identicon

Sæl Hafdís. Gangi þér rosalega vel á morgun. Við hugsum öll til þín.

Guri (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 18:08

4 identicon

Gangi þér vel á morgun.

Hugsum til ykkar á morgun meira en venjulega.

Kveðja

Jóhanna

Jóhanna Guðm. (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 18:16

5 identicon

10 manns dúllan mín, gangi þér vel, jappla á rauðum ópal í vinnunni á morgun og hugsa til ykkar;)

Erla Guðfinna (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 19:29

6 identicon

Knús á móti :)

Ólöf Guðbjörg (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 19:45

7 identicon

Mikið var gaman að fá ykkur til okkar elskurnar.  Þú stendur þig eins og hetja eins og vant er og ég bíð eftir að fá ykkur í alvöru ferð hingað.  Þá ætla ég með þig t.d. til Hríseyjar með ferjunni og í sund á Dalvík með fallega útsýnið yfir Svarfaðardalinn og í leikhús á Akureyri svo EITTHVAÐ sé nefnt.  Það verður líka dekstrað við þig og þú liggur bara í pottinum á kvöldin:)  Mikið verður gaman að fá þig svona þegar þú verður búin að ná þér alveg eftir einhvern tíma.  Knússsss.... Þórunn

Þórunn, Baddi, Ágúst Aron og Alexander Dagur (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 19:46

8 identicon

Jæja þá er nú komið að því, ég mun hugsa extra vel til þín á morgun. Reynið nú að sofa vel í nótt. Gangi ykkur vel elskurnar.

Knús í kotið.

Bogga Jóna (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 19:49

9 identicon

Gangi þér ofsalega vel á morgun, vonandi heppnast viðgerðin eins og best verður á kosið og þú verðir sem nýsleginn á eftir

 Bestu kveðjur,

Sibba, Bjartur og Þorbjörg Þula

Sibba (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 20:10

10 identicon

Kæra Hafdís! Er búin að vera að fylgjast aðeins með þér hérna eftir að Kristín Björk sendi mér slóðina þína. Ætlaði bara að kasta á þig kveðju og segja gangi þér rosa vel á morgun, hugsa til þín!

Kveðja, Hrönn

Hrönn Erlingsdóttir (Seturskona) (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 21:01

11 identicon

Gangi þér rosalega vel, hugsa til þín

Tinna Ösp (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 21:27

12 identicon

Gangi þér vel elsku bestasta Hafdís mín.  Hugsa til þín á morgun!

KV. Sigurbára og co

Sigurbára (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 21:55

13 identicon

Kæra Hafdís! Gangi þér sem allra best á morgun, við sendum þér okkar bestu óskir um góðan bata. Kveðja úr Miðkrika II

Ingibjörg Ýr (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 22:08

14 identicon

Þúsund kossar og knús á ykkur  !!!!

gangi ykkur vel á morgun. við hugsum til ykkar:) hafið það ávallt sem best yndislega fólk:)

Beta (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 22:11

15 identicon

Elsku Hafdís og Örvar hugur okkar verður hjá ykkur á morgun.

Kveðja frá Hvannaeyrinni

Anna Lóa og Kjartan Ottó 

Kjartan Ottó og Anna Lóa (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 22:12

16 identicon

Sendi þér góðar hugsanir og jákvæða strauma, gangi þér vel á morgun.  Kv.  Ásta

Ásta Brynjólfsdóttir (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 22:17

17 identicon

Sæl elsku Hafdís,

ég verð með hugann hjá þér á morgun og bið alla góða vætti um að vera til staðar og passa upp á þig, gangi þér sem allra best í aðgerðinni, knús til þín mín kæra

Berglind Elva (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 23:08

18 identicon

Gangi þér vel í dag!

Kær kveðja Árný

Árný (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 08:50

19 identicon

Gangi þér vel í dag mín kæra :)

Kær kveðja Lollý og fjölskylda.

Lollý (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 09:38

20 identicon

Gangi þér vel í dag  kæra Hafdís   :-) Hugur okkar verður hjá ykkur Örvari.

Kær kveðja frá okkur 

Herborg og Indriði (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 10:23

21 identicon

Elsku Hafdís.

Til hamingju með að allt gekk vel, nú er bara að taka því rólega svo framhaldið verði bara tóm hamingja.

Kveðja, tengdó. 

Jóna Björg Margeirsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 12:44

22 identicon

Sé á skrifum tendamömmu þinnar að aðgerðin hafi gengið vel.  Mikið voru það góðar fréttir.  Hafið það sem allra best.

Kveðja
Árný Jóna og fjölskylda

Árný Jóna (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 12:46

23 identicon

Frábært að heyra að allt hafi gengið vel, gangi ykkur vel að taka því rólega svo framhaldið verði ennþá betra.

Kveðja Begga og strákagengið Egs

Berglind Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband