Fróðleiksmoli dagsins...

Það eru margir sem eru að spyrja mig út í sjónina og ég á dáldið erfitt með að lýsa henni... En fann upplýsingar um þetta svokallaða gaumstol sem ég er með. Efri myndin er eins og þið sjáið hana en neðri myndin er eins og ég sé hana. En ef ég beini hægra auga að efri myndinni, þ.e. horfi ekki beint á hana þá næ ég að sjá hana alla.
f03 fig4 opt
Eins og þið sjáið blindast vinstri hluti myndarinnar... því vinstra sjónsvið á báðum augum eru skert.
Skiljið þið mig??
HeartHafdísKissing

Mánudagur

Kominn er mánudagur enn á ný. Örvar kom með mig hingað Grensás í gærkvöldi, horfðum á Dagvaktina saman hér, þvílíkir snilldarþættir!

í dag eru 39 dagar síðan ég fékk blóðtappann.....það sem gerst hefur á þeim tíma er kraftaverki líkast að mér finnst. Ég er svo þakklát að þessi skaði er að ganga til baka...en viðurkenni auðvitað að það er langt í land...en tíminn vinnur með mér, svo sannarlega.
Sjónin er það sem mér finnst trufla mig mest og það sem truflar mig næst mest er sterkur dofi í vinstri fæti og hönd og vinstra megin í andliti og munni. Ég skrönglast um allt á hækjunni og er meira að segja farin að gleyma henni hér og þar sem er bara gott mál :) Það að ganga hægt og að eiga dálítið erfitt með gang truflar mig sama og ekki neitt miðað við sjón og dofa. Þannig er staðan í dag.

Ég fékk mjög skemmtilegt komment frá sjúkraþjálfaranum mínum en hún sagði við mig: "Ástæðan fyrir því að þér gengur svona vel er að þú ert svo jákvæð og ákveðin í að geta þetta". Þótti nú vænt um að fá svona komment:)

Helgin var yndisleg. Alltaf gott að komast heim. Örvar setti upp jólaseríur í herbergin hjá krökkunum, þau voru ekki lítið glöð með það. Svo fóru feðgarnir í jólaföndur á sunnudaginn í skólann á vegum foreldrafélagsins. Ívar málaði þrjá hluti og gaf mömmu þá alla :o) Rosa flott...Systkinunum er farið að hlakka til jólanna, ekki síst vegna þess að þá kemur mamma sín loksins heim:)

Mamma mín gerðist aftur á móti sjúkraþjálfari á sunnudeginum og við fórum í stelpuferð með Soffíu Ýr með okkur til að skoða stelpuna hans Hafsteins og Kristínar. Sú er dásamleg og alltaf jafn notó að halda á henni og að knúsa hana. Svo um jólin fæ ég tækifæri til að knúsa nýja frændann fyrir norðan, sem ætlar að vera hér á Suðurlandinu um jólin,   og knúsast í honum líka:)

Saumaklúbburinn minn, fyrir utan þrjár sem voru uppteknar í öðru, komu í heimsókn á laugardeginum með VEISLU með sér....nammmmmmi nammmm   Takk elsku vinkonur en Hulda, Árný og Eva, ykkar var að sjálfssögðu sárt saknað...!

Síðasta föstudag þegar ég var  búin í sundæfingum þá fór ég í pottinn á eftir. Þar var maður á milli 50-60 ára sem spurði mig hvað hefði komið fyrir mig. Ég sagði honum það og kom þá í ljós að hann hafði einnig fengið blóðtappa og líka hægra megin í heilann eins og ég. við blöðruðum fram og til baka um heilsu okkar, ekkert smá "gaman" að tala við manneskju sem lent hefur í sama og ég. Hjá honum skertist sjónin reyndar ekkert. En vinstri hlið hans var alveg dofin eins og hjá mér. Þetta skeði fyrir ári síðan hjá honum. Svo eftir einhvern tíma/mánuði losnaði hann alveg við dofann. EN fyrir nokkrum vikum kom dofinn aftur hjá honum. Mjög svekkjandi. En hann ákvað að fara í nálastungur og eftir fyrsta tímann, þegar hann var á leiðinni heim hvarf allur dofinn skyndilega. Hann varð svo hissa og þetta var svo mikið frelsistilfinning. Hann vill endilega gefa mér nafnspjaldið hjá þessum manni sem hann er hjá í nálastungum. Hver veit nema ég prófi þetta einhverntíman...

 

Jæja, þetta var pistill dagsins,,,,,,það eru yfir 100 heimsóknir hér á dag, váá það er slatti. Eins gott að vanda skrifin, hí hí....

 

Grensáskveðja, Hafdís María

 

 


Gott að setjast aðeins fyrir framan tölvuna...

Föstudagar eru langþráðir dagar í huga mínum....vegna þess að föstudagar eru heimferðadagar ;) Það er sem sagt stutt í að ég komist heim í helgarfrí!!

2. Desember næstkomandi er búið að boða okkur Örvar á markmiðsfund nr. 2 með teyminu mínu. Það verður fróðlegt að heyra hvernig teyminu líst á gang mála.

Læknirinn minn hérna á Grensás kom til mín í gær og var að ræða við mig um hitt og þetta. Ég fékk þær upplýsingar að hjartaskoðunin í gegnum vélinda sem ég fór í þegar ég var flutt á Hringbraut var ekki fullnægjandi. Ég kúgaðist víst og kastaði upp í miðri skoðuninni og það var bara  vesen þannig að þeir hættu við í miðju kafi. Ég var deyfð vel, slöngu stungið niður í háls ííííjjjj ........man það, svo bara man ég ekki neitt meira...Samt sögðu þeir þarna á Hringbraut að allt hefði verið í lagi við okkur tengdamömmu sem fór með mér. EN ég er, orðin svo miklu hressari núna en ég var þá, hausinn var að mér fannst að klofna í sundur og þreytan og máttleysið var óbærilegt. Þannig að þann 28. nóvember fer ég aftur og Páll, læknirinn minn hérna, segir það mikilvæga rannsókn fyrir mig. Það er þó ekki alltaf sem hægt er að finna orsök fyrir blóðtöppum. Það er alveg eins víst að ástæðan finnist ekkert. Það er svolítið óþægilegt að geta ekki fundið neina orsök finnst mér en samt eru það alls ekki slæmar fréttir þó ekkert finnist segir páll. Shit happends segir hann jafnframt :) Best er auðvitað að allar rannsóknir komi vel út. Ég fef undanfarið 1 ár verið með kólesteról í hærra kantinum miðað við aldur en nú er búið að mæla það nokkrum sinnum og það er víst í fína lagi!! Ég er ánægð með það.

Hjúkrunarkonurnar hérna eru farnar að læða upp smá jólaljósum....voða kósí hjá þeim og hlýlegt.

 Kveðja af Grensás, Hafdís....

ps..Endalausar þakkir fyrir fallegar kveðjur til mín. Mér þykir voða vænt um þær

 


...

hmj_730297.jpg

 

n_f3ember_2008_20036_730298.jpg

ohh skil ekki af hverju þessar myndir eru svona  voða litlar. En þetta eru myndir frá helginni heima...Við Soffía Ýr á efri myndinni og við Ívar Ari á þeirri neðri.

 

Hér gengur allt vel...árangur æfinganna skilar sér sem er yndislegt. Svo þegar ég útskrifast fyrir jól þá verð ég að vera dugleg að fara í sjúkraþjálfun og gera æfingar!

Best að mæta ekki of seint í morgunmatinn....

 

knús, Hafdís María


Ný vika framundan

Jæja, nú er ég komin aftur á Grensás eftir notalega heimferð!

Á morgun er ferðinni heitið til Háls-nef og Eyrnalæknis, segi meira af því síðar

Ívar Ari var svo óheppinn að detta um helgina þar sem hann kom hlaupandi með bökunarplötu í höndunum frá ömmu Hrefnu sem átti að nota undir trölladeig. Hann datt með hana í hálkunni, lenti með hökuna á brúninni og úr varð gapandi sár. Þá kom heill hjálpræðisher til bjargar:) Amma Hrefna og Lóa fóru með honum til læknis og Hafsteinn keyrði með þau á Hellu þar sem Þórir var á vakt og saumaði 2 spor undir hökuna.

 

Ívar á erfitt með að kveðja mig þegar ég fer að heiman og hingað á Grensás enda er hann mjög viðkvæmur þessi elska. Soffía er öllu sterkari og minna mál að kveðja hana. Hann er MIKILL mömmustrákur...

Jæja þá er bara að vera dugleg í æfingum þessa vikuna svo ég fái örugglega að fara heim fyrir jól.

 Kveðja af Grensás!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Komin heim.....augnlæknaheimsókn lokið!

Jæja,ég er komin heim í frí þar til á sunnudag!

Fórum til augnlæknisins í morgun og í ljós kom að 1/4 af sjónsviði vinstra auga og 1/4 hluti af sjónsviði hægra auga er óvirkt, sem þýðir að þessir hlutar auganna eru blindir blettir. Augnlæknirinn lofaði engu en vonast til þess að þetta gangi að einhverju leyti til baka. En ég mun í framhaldinu, svona þegar fram líða stundir,ekki mega keyra með þessa skerðingu nema fara í sérstakt ökumat og geta staðist það....

nóember 08

Þessi mynd sýnir augun og þeir bitar sem vantar á  myndina er skerðingin(blindu blettirnir)þ.e. 1/4 af sjónsviði hvors auga sem liggja vinstra megin á báðum augum. segið mér bara ef þið skiljið ekki myndina, get þá útskýrt hana betur!

EN er komin heim og ætla að njóta þess í botn!!!!!!!!!!!

HEIMA ER BEST!!!

 

 


Enn líða dagarnir á Grensás...

Hef ekkert að gera og ákvað að henda inn einni bloggfærslu.

Fékk að vita það í dag að á föstudaginn fer ég í langþráða heimsókn til augnlæknis!!! Hlakka til að vita hvað hann segir!

Örvar kemur á morgun og gistir eina nótt, fer með mér til augnlæknisins og svo brunum við í helgarfrí, það verður gott að komast aftur heim

Í gær fór ég heim til Gústa bró og Erlu, voða gott að komast út og í annað umhverfi. Hitti þar hana einu sönnu leikskóla- Hrönn sem kíkti á mig þangað....hún er flutt í Mosó:) Þetta var mjög skemmtilegt, gott að brjóta daginn aðeins upp!!

Búin að vera gestagangur í dag, mjög gaman....Eydís frænka klikkar ekki, ég fékk dýrindis handsnyrtingu hjá henni og Ísabel Rós kom með ;), Lóa kom og fylgdist með litlu systur í sjúkraþjálfuninni:) Svo kom Erla og Bergrún litla...:) Bara gaman..

 Mér hefur farið gríðarlega mikið fram...það eru bara nokkrir dagar síðan ég lá inn á gjörgæslu í móki með miklar höfuðkvalir og var sprautuð af gríð og erg með morfíni.....Heima var vinstri hendin alveg lömuð....en í sjúkrabílnum gekk það þónokkuð til baka að mestu leyti eins var ég farin að tala mun skýraram, ég var óskiljanleg í tali....Guði sé lof að tappinn gerði mér það ekki að ég missti málið....!.

Guðmundur, Ólöf, Einar og Tóti voru í sjúkrabílnum og voru alveg yndisleg. Man ekki mikið eftir mér í sjúkrabílnum en þegar við vorum komin á gjörgæsluna man ég hvað ég var ekki tilbúin að Guðmundur læknir færi aftur til baka með sjúkrabílnum, en auðvitað tóku líka góðir læknar við mér á gjörgæslunni. Ég man voða gloppótt nema helst þetta:)

Hér á 3. hæð er lítið af ungu fólki....enda sagði doktorinn að það væri sjaldgæft að fólk á sama aldri og ég, 26 ára, fengi blóðtappa. Þótt það væri skemmtilegra að kynnast einhverjum á sínum aldri hér þá er bara gott að fáir ungir lendi í því sama og ég...

 

Held áfram að berjast.......með því að nota hlýjar hugsanir og kveðjur frá ykkur að vopni í baráttunni :) Þetta lítur allt vel út!

 

Kveðja, Hafdís M.J á Grensás

 


Fyrir jól...

Örvar tilkynnti mér það um daginn að ég yrði að vera dugleg að  blogga því það væru margir sem vildu fylgjast með mér, þannig að þið fáið eitt blogg í dag :)

Helgin heima  var frábær, æðislegt að fá að komast smá heim í kotið sitt:) Var þreytt en mér var sagt að ég yrði líklega mjög þreytt, þó ekki væri nema fyrir það að  breyta um umhverfi. Ívar fékk ömmu Hrefnu til liðs við sig til að undirbúa óvænta veislu fyrir mig, það var steikt læri með öllu tilheyrandi og ís í eftirmat:) Svaka veisla. Svo kom Erna með kaffihlaðborð;) og Lóa systir með heita réttinn góða, takk fyrir það:) 'Eg komst svo vel uppá það að nota hækjuna svo ég er HÆTT AÐ NOTA GÖNGUGRINDINA:) :)

knúsaði börnin mikið, þau voru ofsalega glöð að fá mömmu heim og hjálpuðu mér mikið...Rosa dugleg og sterk....

Svo fékk ég að knúsa prinsessu Hafsteinsdóttur, algjör dúlla!! Steinsvaf í fanginu á mér, voða notó :)

í morgun var svo fundur hjá mér hérna með því teymi sem að mér kemur, þ.e. sjúkraþjálfarnir mínir, iðjuþjálfi, læknirinn minn páll Ingvarsson og hjúkrunarkona OG ÖRVAR:). Teymið telur að ég útskrifast fyrir jól!!!!!!!!!!!!!!!!! Ef gengur sem horfir. Ég viðurkenni að ég var nokkuð hissa......bjóst ekki við að það yrði svo snemma. Ég er a.m.k. ekki fær um að vera heima mikið meira en yfir helgi eins og staðan er í dag. En með þessari óþrjótandi þjálfun er þetta raunhæft og það er frábært!!! Ég kem ekki til með að geta unnið nærri strax en það er samt nokkur framför á kjellunni:)

Sjónin er að trufla mig mjög mikið og pantaði Páll tíma fyrir mig hjá augnlækni til að láta mæla sjónsviðið. Þetta er eitthvað sem ég má vona að gangi til baka og ég vona það svo sannarlega. Hann taldi líka árans náladofinn verði líklega nokkuð lengi að minnka. Hann er virkilega óþægilegur og stundum mjög sár. það er helst stjórnleysið á vinstri hönd og fót sem er vandamálið. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er langtímaverkefni og þolinmæðin þrautir vinnur allar.

svo neyðist ég ti þess að fara aftur í hjartaskoðun í gegnum vélinda:( Það á eitthvað að skoða hjartað betur.

 

Örvar er aftur farinn heim til krakkanna og í bústörfin, allt gengur sinn vanagang í sveitinni góðu.

 

Er orðin kófsveitt eftir þessi skrif og komin með dúndrandi augn og hausverk svo ég læt þetta duga...MILLJÓN þakkir fyrir allar kveðjur hér....!!!!

 

KNÚS.....Hafdís Grensásgella;)


Update

Í svartnættis myrkri

ég hrökk upp við það

að fóturinn sterki

sem drottinn mér gaf,

var máttlaus og lamaður

og lét ekki af stjórn.

Lífið mig krafði um ógnstóra fórn.

 

Í hjartanu hryggur með lamaða sál

ég örmagna leita til drottins um hjálp.        

Þá birtust mér englar með kærleik í hjarta.

Mér fannst eins og ég sæi aftur sólina bjarta

Á Grensási englana mína ég fann.

Þeir sameinuðust um að gera úr mann

sem gengi á fætinum aftur.

(Höf Hjálmar).   

Rakst á þetta ljóð niðri í sjúkraþjálfun og mér finnst þaðp svo dásamlegt. Það er eftir mann sem lenti í sama áfalli og ég... langaði bara að deila því með ykkur. 


Nú brosi ég hringinn

Ég má fara í heimsókn heim til mín á laugardag og gista eina nótt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég ákvað bara að spyrja sjúkraþjálfarann og yfir-hjúkkuna......og haldiði að kellingin hafi ekki fengið grænt ljós á það!!!!!!!!!!!!!!!

Fer í iðjuþjálfun á morgun og sjúkraþjálfunin í morgun gekk rosa vel...finn að ég er að öðlast aukinn styrk og jafnvægi...finn mikinn mun á mér...orka og úthald hefur aukist gríðarlega!!

Hausverkurinn er svoldið að stríða mér en sveitakellingar harka það af sér hehe

 KNÚS TIL ALLRA SEM FYLGJAST MEÐ MÉR HÉR.....FER MJÖG REGLULEGA Í TÖLVUNA AÐ GÁ AÐ NÝJUM KVEÐJUM......ÞÆR ERU ALGJÖRAR VÍTAMÍNSPRAUTUR


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband