Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
félagshæfnisögur
Langar að þú skoðir hjá mér það sem ég var að búa til. Hvaða netfang ertu með? Kveðja sóley
Sóley Ástvaldsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 24. mars 2010
njóttu lífsinns
Halló,halló öll sömul,já ég sé að þú Hafdís slærð ekki slöku við í uppbyggingunni,gangi þér vel áfram,kveðja úr firðinum fagra.
Bryndís Guðjónsdóttir. (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 8. júní 2009
Bros og knús.
Já þú ert svo snnarlega kraftaverk,mikil baráttukona Hafdís,gangi þér ávallt sem berst.kveðjur frá Fásk.
Bryndís Guðjónsdóttir. (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 10. maí 2009
sumarkveðja
Gleðilegt sumar öll sömul,óska ykkur gæfu og gengis í framtíðinni.Já lífið er svo sannarlega dásamlegt,en það þarf mis-mikið að hafa fyrir því,en Hafdís þú ert ofur-hetja með mikla reynslu sem færir þér styrkleika.Nú er vorið komið og hvergi yndislegra en í sveitinni...knús..knús til ykkar allra kveðjur Bryndís og Gunnar.
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 29. apr. 2009
Bros
Gleðilegt sumar. Sendi þér bros ;) Kv. Steina.
steina (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 23. apr. 2009
Kveðja
Hæ hæ Hafdís og Örvar mikið er nú gott að þetta gekk vel, og vonandi verður nú heilsan varanleg í framtíðinni. Það var gaman að hitta ykkur á Staðarborg þótt það hafi verið lítill tími. Farið vel með ykkur og þú sérstakleg Hafdís mín og mundu að gefa þér góðan tíma til að ná þér ég er sanfærð um það að það kemur. Guð verði með ykkur og ég mun halda áfram að hafa kveikt á kerti fyrir ykkur á kvöldin til stirktar ykkur og hugsa mjög oft til ykkar. Sjáumst vonandi í sumar Kveðja Fjölskyldan á Kroppi í Eyjarfirði
Guðný Helga (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 19. apr. 2009
Knús,knús.
Gott að viðgerðin gekk vel,farðu vel með þig,hugsa til ykkar,kveðja Bryndís.
Bryndís Guðjónsdóttir. (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 16. apr. 2009
Kveðja
Hugsa hlýtt til þín og ykkar allra. Kv. Auður Fr. Halldórs
Auður Fr. Halldórsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 15. apr. 2009
Hetja
Sæl Hafdís,takk fyrir síðast.Æ það var svo gaman að hitta ykkur um páskana,þú ert sko algjör hetja vissirðu það.Ég óska að allt gangi vel á næstu dögum hjá þér og þú fáir fullan bata.Kærleik-skveðja til fjölskyldunnar ,Bryndís og Gunnar Jósep.
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 14. apr. 2009
Gleðilega páska.
Var að kíkja á síðuna og athuga hvað væri að frétta af þér. Mér finnst ég geta lesið milli línanna hvað þú ert dugleg og átt góða að. En annars gleðilega páska og bjarta framtíð. Kveðja Steina.
steina (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 12. apr. 2009
Kveðja frá Kroppi
Kæru Hafdís og Örvar ég var að kíkja á blogið og skoða nýustu fréttir. Vonadi er þetta bara búið núna hjá ykkur og þú Hafdís farir að ná bata aftur, en maður vill nú samt fá að vita hvað er að valda þessu og vonandi kemur það í ljós svo að það væri hægt að sprna við fleyrum köstum en vonandi er þetta bara búið. Guð verði með ykkur öllum og ég mun halda áfram að kveikja á kertum og biðja fyrir ykkur. kær kveðja Guðný á Kroppi
Guðný (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 17. mars 2009
´Vinakveðja
Kæra Hafdís mín..Hugsa mjög mikið til þín þessa dagana gangi þér sem allra allra best í þessari baráttu væna mín.kveðja Gunna Inga
Guðrún Ingadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 16. mars 2009
Kveðja að austan
Kæra Hafdís,Sendum þér baráttukveðjur héðan að austan,manni fannst nú alveg vera komið nóg,en þú ert örugglega mjög ákveðin kona og kemst í gegnum þetta líka,sendum innilegar afmæliskveðjur til barnanna og ykkar allra,Finnbogi frændi og Gunnhildur
Gunnhildur Stefánsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 16. mars 2009
kveðja frá Fásk.
Kæra Hafdís,nú er alveg nóg komið hjá ykkur og meira en það,óska að sé ekki meiri alvara á ferðum.Kær kveðja til ykkar allra.Bryndís og Gunnar.
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 15. mars 2009
Baráttuhveðja
Elsku Hafdís! Hugsa stíft til þín og reyni að senda þér góða strauma. Gangi þér vel. Kveðja Steina.
Steina (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 12. mars 2009
afmælisósk
Innilega til hamingju með daginn þinn,ég hef fulla trú á nálastungum við hvaða hvillum sem er,gangi þér ávallt sem berst,kveðja í bæinn,Bryndís og Gunnar
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 21. feb. 2009
Skemmtun
Hæ og takk fyrir síðast. Þetta var mjög skemmtileg kvöldstund hjá henni Ingibjörgu. Og gaman að hitta þig svona hressa. Sjáumst Steina.
Steina (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 19. feb. 2009
Velfarnaðaróskir!
Sæl Hafdís, gaman að sjá hvað þér gengur vel að ná heilsu aftur.Ég hef stundum kíkt á síðuna þína, þó ég hafi ekki kvittað fyrir.Góðar óskir til þín og fjölskildunnar.Kveðja, Rúna.
Guðrún Aradóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 3. feb. 2009
Þunn???
Jæja ljúfan, svo þú ert ekki nóg og þunn. Gott að verið er að fylgjast með gangi mála, njóttu þess að synda og gera það sem þér finnst auðveldast og best fyrir þig, knús knús.
B. Gyða (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 30. jan. 2009
hetja
Hafdís, þú ert algjör hetja, gangi þér vel áfram,kveðja frá Fásk til ykkar allra.
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 23. jan. 2009
nýjárskveðja
Til lukku þið eruð sæt saman.Kveðja frá Skólavegi 4 Fásk.
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 7. jan. 2009
Hamingjuóskir
Hæ hæ, ég er ein af þessum leynivinum Ásta systir Ara og ég veit að Júlía kíkir líka á síðuna til að vita hvernig þér gengur að láta þér batna. Til hamingju með verðandi eiginmann, HEPPIN!!! Ég veit að margir úr fjölskyldum Örvars eru að kíkja á bloggið þitt til að fylgjast með þér og þínum. Kveðja Ásta Guðmundsd asta@saturnus.is þetta er vinnunetfangið en stundum kíki ég líka heima.
Ásta Guðmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 2. jan. 2009
jólakveðja
Elsku Hafdís,Örvar og börn,Guð gefi ykkur gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár,óskum ykkur allra heilla í framtíðinni.Kærar kveðjur , Bryndís, Gunnar Jósep,og fjölskylda.
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 23. des. 2008
Kærleikskveðjur
Sæl Hafdís.Gott að heyra hvað all gengur vel og mikið verður gaman að fá þig heim í sveitina,mikið hugsum við oft til ykkar og endilega ef við getuum eitthvað gert þá bara að hringja,Ívar Ari alltaf velkomin í Litlagerðið bara gaman að fylgjast með litlu Lego frændunum Bestu kveðjur og Gleðilega hátíð.Kveðja Jónína og Fjölsk.
Jónína (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 17. des. 2008
Kærleikskveðja
Kæra Hafdís og fjölskylda,gaman að fylgjast með og heyra skemmtilega frásögn um afa þinn,þar áttu góðar minningar.Gangi ykkur ávallt vel.Bryndís og Gunnar á Fásk.
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 11. des. 2008
stuðningskveðjur
Kæra Hafdís,ekki finnst okkur lífið alltaf sanngjarnt,við viljum hafa það sem við fengum í vöggugjöf,stundum spyrjum við,,hver er tilgangurinn,,fátt verður um svör.Kæra fjölskylda, megi góður Guð styrkja ykkur í batanum,með von um að hann komi sem fyrst.
BRYND'IS GUÐJ'ONSD'OTTIR (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 8. des. 2008
Kveðja frá Gunnu
Hæhæ elsku Hafdís mín. Mikið hugsa ég oft til þín og bið fyrir þér og þínum,sendi ykkur öllum baráttukveðjur ég veit að þú ert rosalega dugleg og gerir allt eins vel og þú getur hittumst fljótt. knús Gunna Inga
Guðrún Ingadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 7. des. 2008
Baráttukveðjur
Ég sendi ykkur öllum baráttukveðjur. Ég veit að þú ert sterk. Bestu kveðjur til mömmu þinnar og pabba og síðast en ekki síst til Örvars og barnanna. Þín frænka Guðrún Benediktsdóttir Þrándarstöðum
Guðrún Benediktsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 6. des. 2008
Kveðjur og knús
Hæhæ skvís, vonandi hefuru það gott og vonandi fær maður að sjá þig bráðum. Komst því miður ekki á tónleikana en ég hugsaði til þín í staðinn:) Núna erum við mægður komnar með fínustu íbúð á Hvolsvelli og vonumst til að fá ykkur í heimsókn, allavega orðið alltof langt síðan við sáumst... Knús og baráttukveðja frá okkur mægðum, Matthildur og Katrín Lilja
Matthildur (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 2. des. 2008
Kveðjur og knús
Hæhæ skvís, vonandi hefuru það gott og vonandi fær maður að sjá þig bráðum. Komst því miður ekki á tónleikana en ég hugsaði til þín í staðinn:) Núna erum við mægður komnar með fínustu íbúð á Hvolsvelli og vonumst til að fá ykkur í heimsókn, allavega orðið alltof langt síðan við sáumst... Knús og baráttukveðja frá okkur mægðum, Matthildur og Katrín Lilja
Matthildur (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 2. des. 2008
Stuðningskveðjur .
Kæra Hafdís,gaman að fylgjast með þér og ánægjulegt að heyra hvað gengur vel hjá þér..einmitt jákvæðnin skiptir öllu máli.Eigðu ánægjulega aðvenntu ,við þessar aðstæur,kveðja til Örvars og barnanna ykkar.Kærar kveðjur,Bryndís og Gunnar á Fáskrúðsfirði
Bryndís Guðjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 30. nóv. 2008
Baráttukveðjur frá Selfossi
Elsku Hafdís mín vona að þú hafir haft góða helgi í faðmi fjölskyldunnar,gangi þér áfram vel í baráttunni, bið fyrir þér á hverju kvöldi, Baráttukveðjur til ykkar allra bið að heilsa Örvari og krökkunum þið eruð öll hetjur þín vinkona Guðrún Steinars Selfossi
Guðrún Steinars (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 16. nóv. 2008
kveðja frá Báru
Sæl og blessuð.Það er mikið gaman að fylgjast með hvað gengu vel hjá þér.Einhvern laugardaginn fyrir jól ætlum við í mótmælagönguna og þá langar mig að kíkja til þín.(Jón Pétur er eins og hann er:svakalega spenntur og vill taka egg með í gönguna...) Þú ert alveg svakalega dugleg og maður fyllist jákvæðni og bjartsýni að lesa skrifin þín. Hafðu það sem allra best,bless Bára
Bára Rúnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 14. nóv. 2008
Kveðja úr sveitinni
Sæl Hafdís mín. Gaman að geta fylgst með þér hér og sjá hvað vel gengur. Gangi þér vel í baráttunni og ég veit að þér ferst þetta vel úr hendi eins og önnur verkefni sem þú hefur tekið þér fyrir hendur. Það verður gaman að fara að sjá þig hér í sveitinni aftur. Baráttukveðjur, Lilja Einars.
Lilja Einarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 12. nóv. 2008
Helga Jör.
Hafdís mín. Mikið er ég glöð að heyra hvað þetta gengur vel hjá þér. Þú verður farin að búa til jólakortin áður en við er litið. Baráttukveðjur frá okkur öllum Helga fjör.
Helga Jörundasdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 10. nóv. 2008
Sæl
Sæl Hafdís það er mjög gaman að lesa þessa síðu þína,gangi þér vel að ná bata kv.Berglind frá Ey
Berglind Bergmann (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 7. nóv. 2008
Kveðja frá öllum á Sperðli
Kæra Hafdís. Mér var bent á síðuna þína og það er gott að geta fylgst með þér hér. Við vitum ekki úr hverju við erum gerð fyrr en við lendum í erfiðleikum. Þú býrð greinilega yfir miklum styrk. Ég óska þér góðs og skjóts bata og ef það er eitthvað sem ég get aðstoðað við - ekki hika við að láta mig vita. Kær kveðja, Inga Björk Gunnarsdóttir
Inga Björk Gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 6. nóv. 2008
Kveðja frá stelpunum í apótekinu
Hæ sæta Gott að vita að allt er á góðri leið, bestu kveðjur frá okkur Knús knús
Inga Kolla (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 3. nóv. 2008
Ívar Ari í Hvolsskóla
Kæra Hafdís!Allt er á öðrum endanum í skólanum þessa dagana vegna 100 ára afmælis skólans. Strákurinn þinn var hress í dag, ánægður með að fá að vera til hlés dálitla stund að byggja fjögurra hjóla furðuverk úr Legó. Hann segir þér frá því (ykkur foreldrunum). Gangi þér vel á Grensás - þar vinnur gott fólk. Kveðja Sóley
Sóley Ástvaldsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 30. okt. 2008
Kveðja frá Helgu fjör
Elsku Hafdís mín. Það er gott að þú ert bjartsýn enda hefur þú þig í gegn um þetta með þínum dugnaði. Gangi þér vel á Grensás. Kveðja frá öllum á Örkinni.
Helga Jörundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 30. okt. 2008
Kveðja frá þúfu
Sæl Hafdís ! Bestu kveðjur til þín og þinna og óskir um góðan bata. Kveðja frá Þúfu
Anna Berglind (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 30. okt. 2008
Gangi þér vel ;)
Sæl Hafdís! Ég á barn sem ljómaði og brosti hringinn þegar við löbbuðum inn á deildina í leikskólanum í morgun;) Loksins loksins mamma....Soffía komin ;) Hún sóldís bjó til handa þér gjöf að eigin frumkvæði og er búin að spá mikið í þessu öllu saman...hún trúir því að þér muni batna um leið og þú fáir hana(veit ekki hvort hún sé komin til skila:) ) Gangi þér sem allra best með framhaldið og ef ykkur vantar hjálp með Soffíu þá er það minnsta málið ;) Baráttukveðjur úr öldubakkanum nr 11
maren (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 30. okt. 2008
Kveðja frá Kornvöllum
Sæl og blessuð elsku Hafdís mín hugsa til þín oft á dag og vona að að allt gangi sem allra best.Hér gengur allt sinn vanagang og veturkonungur farinn að minna á sig:byrjaði að gefa hrossunum 19.okt og í dag fá kindurnar fyrstu tugguna.Ef það er mögulega eitthvað sem ég get gert til að hjálpa til t.d. ef Ívar Ari vill koma í heimsókn þá er það meira en sjálfsagt. Kærar kveðjur Bára,Valdi og börnin
Bára Rúnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 30. okt. 2008
Baráttukveðja frá Þorlákshöfn
kæra fjölskylda bestu óskir um góðan bata meigi guð og lukkan fylgja ykkur Hafdís mín eg veit að þú ert sterk kveðjur frá Rannveigu og Villa
Rannveig (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 24. okt. 2008
Gangi þér sem best!
Sæl og blessuð Hafdís mín. Þú getur verið viss um að hugur okkar hér í Hvolsskóla er hjá þér þessa dagana. Ég sendi þér mínar bestu óskir og megi allar góðar vættir fylgja þér og styrkja. Kossar og kveðjur, Ranka í Hvolsskóla.
Ragnheiður Jónasdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 23. okt. 2008
Gangi þér vel
Kæra Hafdís. Okkur í Hvolsskóla var bent á síðuna þína og mig langar að senda þér hlýjar kveðjur. Hugurinn er hjá þér og við biðjum allar góðar vættir að gefa þér fyrri styrk sem allra fyrst. Bestu kveðjur til allra í fjölskyldu þinni. kveðja Þórunn Óskarsdóttir miðstigi
Þórunn Óskarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 22. okt. 2008